|
|


Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - Sími 555 6000 |
Við leggjum áherslu á að vera þekkt fyrir vandaða ráðgjöf og góða þjónustu. Kjörorð okkar eru: Hugkvæmni - Árangur - Heilindi. |
Hugkvæmni: Skapandi hugsun er mikilvægur þáttur í nútímalögfræði, þar sem löggjöf breytist ört og úrlausnarefnin verða sífellt flóknari. Hugvitssemi er oft lykillinn að því að finna bestu lausnina á flóknum viðfangsefnum. KVASIR lögmenn leggja áherslu á frumkvæði og skapandi lögfræði. Einkennislitur KVASIS lögmanna, djúprauður, er valinn með hugkvæmni að leiðarljósi í anda Skáldamjaðarins sem lagaður var úr blóði KVASIS. Árangur: KVASIR var þeirrar náttúru að enginn gat borið upp þá spurningu sem hann kunni ekki svar við. Fyrir okkur táknar nafnið það markmið að geta leyst á árangursríkan hátt úr hverju því viðfangsefni sem viðskiptavinir okkar bera upp. Heilindi: Leiðarljós KVASIS lögmanna er að rækja störf okkar af fagmennsku og gæta ávallt hagsmuna viðskiptavina okkar í hvívetna. Við viljum vera þekkt fyrir áreiðanlega ráðgjöf. Þannig hlúum við að einni verðmætustu eign okkar, orðsporinu. Orðið heilindi táknar í okkar huga heiðarleika, fagmennsku, traust og áreiðanleika. |
KVASIR Lögmenn |